Fyrirtækið

Markmið Húsasmiðjunnar,
Blómavals og Ískrafts er að veita
framúrskarandi þjónustu í sátt
við umhverfið og samfélagið

Við erum hluti af BYGMA

Húsasmiðjan er hluti af dönsku byggingavörukeðjunni
BYGMA sem starfrækir verslanir í Danmörku, Svíþjóð,
Íslandi, Færeyjum og Grænlandi. Hjá BYGMA starfa um
2.700 manns í yfir 100 verslunum. BYGMA er danskt
fjölskyldufyrirtæki, stofnað árið 1952 og er í dag ein af
leiðandi byggingarvöruverslunarkeðjum í Danmörku.

Stjórnarhættir

Stjórn og stjórnendur Húsasmiðjunnar hafa sett sér það markmið að viðhafa góða stjórnarhætti. Stjórnarhættir félagsins eru í samræmi við lög nr 138/1994 um einkahlutafélög og samþykktir félagsins. Félagið fylgir leiðbeiningunum um stjórnarhætti sem útgefnir eru af Viðskiptaráði Íslands, Samtökum atvinnulífsins og Nasdaq Iceland. Leiðbeiningarnar má finna á leidbeiningar.is. Félagið víkur frá leiðbeiningum þar sem félagið hefur ekki tilnefningarnefnd, endurskoðunarnefnd, framkvæmir ekki árangursmat. Hlutfall kynja í stjórn uppfyllir ákvæði laga um einkahlutafélög um kynjahlutföll í stjórnum félaga sem eru með 3 stjórnarmenn og fleiri en 50 starfsmenn, þar sem í stjórn er ein kona og tveir karlar.

Stjórnskipulag - framkvæmdastjórn

Framkvæmdastjórn tekur allar stefnumótandi ákvarðanir og þar með ákvarðanir varðandi sjálfbærni. Verkefnastjóri umhverfis- og samfélagsmála starfar á mannauðssviði og vinnur náið með framkvæmdastjórn um tiltekin málefni.

Árni Stefánsson

Forstjóri

Guðrún Tinna Ólafsdóttir

Framkvæmdastjóri verslunarsviðs

Edda Björk Kristjánsdóttir

Mannauðsstjóri

Magnús Magnússon

Markaðsstjóri

Magnús G. Jónsson

Framkvæmdastjóri fjármálasviðs

Pétur Andrésson

Framkvæmdastjóri vörusviðs

Framkvæmdastjóri fagsölusviðs

Sigurður Orri Jónsson

Brynjar Stefánsson

Framkvæmdastjóri Ískrafts

Flokkunarreglugerð ESB (EU Taxonomy)

Evrópska flokkunarreglugerðin felur í sér samræmdar og auknar kröfur til fyrirtækja er varða upplýsingagjöf og gagnsæi sem viðkemur sjálfbærni. Húsasmiðjan fellur undir gildissvið þessarar löggjafar sem var lögfest á Íslandi þann 1. júní 2023.

Húsasmiðjan vinnur að því að greina reksturinn eins og lýst er í flokkunarreglugerðinni. Við fyrstu skoðun þá eru vöruflutningar Húsasmiðjunnar eina atvinnustarfsemin sem er gjaldgeng (e. eligible) og fellur undir reglugerðina. Unnið verður áfram að því að greina starfsemi Húsasmiðjunnar og skoða hvort gjaldgeng starfsemi falli að kröfum (e. aligned) reglugerðarinnar.

Húsasmiðjan hefur ekki greint að fullu lágmarks verndarráðstafanirnar er varða mannréttindi, spillingu og mútumál, samkeppni og skattamál. Því verður lokið 2024 og greint frá í sjálfbærniskýrslu Húsasmiðjunnar fyrir það ár. Húsasmiðjan hefur skýra stefnu varðandi spillingar- og mútumál sem kynnt hefur verið starfsfólki Húsasmiðjunnar.

Leiðbeiningar um það eru aðgengilegar í gæðahandbók félagsins inni á innri vef Húsasmiðjunnar. Þá hafa verið innleiddar siðareglur fyrir vörustjóra. Reglur um móttöku reiðufjár hafa einnig verið innleiddar, sjá nánar í yfirliti yfir mikilvægar innri reglur.

Mikilvægisgreining

Húsasmiðjan hefur hafið vinnu við mikilvægisgreiningu til að undirbúa komandi löggjöf um sjálfbærni-upplýsingar eða CSRD (Corporate Sustainability Reporting Directive).

Fyrstu niðurstöður mikilvægisgreiningarinnar endurspegla kjarnarekstur og lykiláskoranir fyrirtækisins og staðfestir að sjálfbærni er hluti af allri starfsemi Húsasmiðjunnar. Greining er gerð í samræmi við kröfur ESRS staðlanna sem fylgja CSRD löggjöfinni þar sem mikilvægir sjálfbærniþættir eru greindir ásamt áhættu, tækifærum og áhrifum.

Aðild að samtökum

Húsasmiðjan er aðili að Viðskiptaráði Íslands, Samtökum verslunar og þjónustu, Samtökum atvinnulífsins og Stjórnvísi. Einnig er fyrirtækið aðili að Festu, miðstöð um samfélagsábyrgð og sjálfbærni, ásamt samtökunum Grænni byggð.

Viðskiptalíkan

Yfirlit yfir mikilvægar innri reglur

Listi yfir reglur og stefnur Húsasmiðjunnar sem varðar þætti í starfsemi fyrirtækisins

·   Heilsustefna
·   Viðverustefna
·   Netöryggisstefna
·   Umhverfisstefna
·   Stefna og viðbragðsáætlun
·   Siðareglur
·   Mannauðsstefna
·   Fræðslustefna
·   Gæðastefna
·   Jafnlaunastefna
·   Jafnréttstefna
·   Samkepppnisréttarstefna
·   Persónuverndarstefna
·   Reglur um vernd uppljóstrara
·   Reglur um móttöku reiðufés

Hagaðilar

Allt starfsfólk Húsasmiðjunnar er á launum samkvæmt ákvæðum kjarasamninga. Húsasmiðjan hefur ekki farið í sérstaka greiningu á hagsmunaaðilum heldur notast við innri skilgreiningu og gerir reglulega viðhorfskannanir á meðal viðskiptavina og starfsmanna varðandi þjónustu og starfsánægju innan fyrirtækisins. Einnig eru framkvæmd reglulega starfsmannaviðtöl og haldnir upplýsingafundir.

Um skýrsluna

Efnistök skýrslunnar og viðfangsefni byggja á greiningarvinnu sem gerð var af völdum einstaklingum innan fyrirtækisins. Byggir það á hvernig fyrirtækið getur stutt við hagsmunaaðila og viðskiptavini í því að byggja á sjálfbærari hátt. Jafnframt tengjast þau útvöldum Heimsmarkmiðum Sameinuðu þjóðanna sem Húsasmiðjan telur að tengist beint eða óbeint starfsemi fyrirtækisins.

Í skýrslunni er gert grein fyrir rekstri starfstöðva Húsasmiðjunnar á Íslandi, þar með talið Blómaval og Ískraft. Þau gögn sem koma fram varðandi losun fyrirtækisins afmarkast við beina og óbeina losun frá rekstri fyrirtækisins. Skýrslan afmarkast við starfsemi Húsasmiðjunnar.

Upplýsingar í skýrslunni er fengnar úr ársreikningi og umhverfisuppgjöri fyrirtækisins og eiga við árið 2023. Söfnun gagna og útreikningur á kolefnisfótspori og tengdum lykilmælikvörðum Húsasmiðjunnar, Blómavals og Ískrafts er unninn af starfsmönnum Klappa grænna lausna hf.

Nýtt er hugbúnaðarlausn Klappa sem byggir á áreiðanlegri Hagaðilar og gagnsærri upplýsingaöflun, bæði frá fyrirtækinu og þriðja aðila. Hugbúnaðarlausn Klappa hefur hlotið vottun á umhverfisútreikningum, umfang 1, umfang 2 og umfang 3 samkvæmt GHG Protocol staðli. UFS taflan er framsett skv. leiðbeiningum Nasdaq, útgefnum á íslensku árið 2019 og vísað er í helstu alþjóða leiðbeiningar og staðla m.a. í viðeigandi GRI staðla, UN Global Compact og Heimsmarkmið.

Auk þess er horft til væntanlegs Evrópustaðals, draft ESRS E-1 Climate Change. Þannig tryggir kerfi Klappa að útreikningar og upplýsingar sem birtar eru í UFS töflu uppfylli kröfur viðeigandi staðla sem unnið er með í kerfi Klappa og vísað er til í UFS töflu. Upplýsingar varðandi samfélagsuppgjör eru fengin úr innri kerfum fyrirtækisins.

Í skýrslunni eru viðfangsefnin fjölbreytt og mörg þeirra hafa beina eða óbeina tengingu við Heimsmarkmiðin. Meðal þess sem fjallað er um eru umhverfismál og losun gróðurhúsalofttegunda, samfélagslegir þættir á vinnustað s.s. jafnrétti á vinnustað, starfsöryggi og vinnuvernd, mannauður, vistvænar vörur og umhverfisvottanir.

Húsasmiðjan hefur frá árinu 2019 verið hluti af samfélagsskýrslu Bygma samsteypunnar og mun halda því áfram ásamt því að gefa út sína eigin sjálfbærniskýrslu. Skýrslan er unnin með upplýsingum sem vísað er í GRI tilvísunartöflu með tilvísunum (GRI content index with reference) sem tók gildi 1. janúar 2023 og er fyrir tímabilið 1. janúar 2023 til 31. desember 2023 í samræmi við GRI staðla. Upplýsingar eru ekki yfirfarnar af þriðja aðila.

Húsasmiðjan hefur frá árinu 2019 verið hluti af samfélagsskýrslu Bygma samsteypunnar og mun halda því áfram ásamt því að gefa út sína eigin sjálfbærniskýrslu

Markmið okkar

Húsasmiðjan er leiðandi verslunar og þjónustufyrirtæki á bygginga-og heimilisvörumarkaði. Markmið fyrirtækisins er að veita framúrskarandi þjónustu, rétt vöruúrval og samkeppnishæft verð, í sátt við umhverfi og samfélag.

Húsasmiðjan stuðlar að sjálfbærni innan byggingageirans á Íslandi

Húsasmiðjan og Bygma samstæðan hafa greint sjö meginmarkmið af heimsmarkmiðum Sameinuðu þjóðanna til að vinna með útfrá rekstrinum